Evrrópukeppnin í Keflavík: Miðasala hefst í dag
Á miðvikudaginn er fysti leikurinn í Bikarkeppni Evrópu - FIBA Europe Cup. Þeir sem eru meðlimir stuðningsmannaklúbbsins frá frítt á leikinn, en aðrir hafa nú kost á því að kaupa miða á útsöluverði. Venjulegt miðaverð á leikstað er 1000 kr fyrir fullorðna og 500 kr fyrir börn á grunnskólaaldri.
Í dag hefst forsala aðgöngumiða í Skóbúðinni og Kóda á Hafnargötunni. Þar verða miðar seldir fram til hádegis á miðvikudag á 800 kr. fyrir fullorðna og 300 kr. fyrir börn. Við skorum á fólk að tryggja sér miða í tæka tíð og nýta sér afsláttinn sem boðið er upp á.