Fréttir

Karfa: Karlar | 10. apríl 2008

Express Hringlið á föstudag

Eins og flestir sem fylgjast með körfuboltanum vita þá hefur Iceland Express verið frábær bakhjarl í íslenskum körfubolta og hefur tekið þátt í skemmtilegum uppákomum eins og Borgar-Skotið er frábært dæmi um. Á leik Keflavíkur og ÍR á föstudaginn verður Express Hringlið.
 

" Express Hringlið " er með þeim hætti að einn áhorfandi verður dreginn út. Þegar annað liðið tekur sitt fyrsta leikhlé þá hefst fjörið. Viðkomandi fær 24 sekúndur til að snúa sér í 10 hringi við miðlínuna og rekja síðan boltann að körfunni þar sem hann reynir að koma boltanum ofan í. Nái hann að skora þá fær sá hinn sami flugferð til Evrópu með Iceland Express.