Fréttir

Körfubolti | 17. desember 2003

Falur ekki leikfær - tveir leikstjórnendur úr leik hjá Keflavík!

Falur hefur lengi átt við hnémeiðsli að stríða. Upp á síðkastið hefur annað hnéð verið að angra hann og eftir síðasta heimaleik í Keflavík lét hann "tappa af" miklu magni af vökva úr hnénu. Líklegt er að hnjáliðurinn sé orðinn skemmdur og því má hann ekki við miklu meira hnjaski. En Falur var að miklu leyti búinn að jafna sig fyrir leikinn gegn Ovarense og hélt ekki aftur af sér í þeim leik. En eftir leikinn fór hnéð að segja til sín og bólgnaði upp. Í dag var hann litlu skárri, haltraði um og gat ekki æft með strákunum í kvöld í íþróttahúsinu í Madeira. Eins og staðan er nú mun Falur ekki leika með á morgun, en það er afar slæmt fyrir okkar lið, ekki síst þar sem hinn leikreyndi leikstjórnandi liðsins, Hjörtur Harðarson, er líka fjarverandi sökum meiðsla (viðbeinsbrotinn). En þá reynir á aðra í liðinu og líklegt má telja að Sverrir, Davíð og Arnar spreyti sig í hlutverki leikstjórnenda í fjarveru Fals. Við skulum þó ekki gefa upp alla von með Fal strax, þó ekki sé útlitið bjart.