Falur, Gunnar Ein og Magnús hvíla í kvöld gegn Hamri
Í kvöld leikur Keflavík seinni leikinn gegn Hamri í 8 liða úrslitum Hópbílabikarsins. Þrjár breytingar verða gerðar á liðinu í kvöld frá Evrópuleiknum á miðvikudaginn. Skytturnar þrjár, Magnús, Gunnar Einars og Falur munu hvíla, en í stað þeirra koma aðrar skyttur, Davíð, Gunnar Stef og Sævar inn í liðið, líkt og í fyrri leiknum sem lauk með 30 stiga sigri Keflavíkur á útivelli, 65-95. Keflavíkur getur tryggt sér þátttökurétt í keppni hinna fjögurra fræknu í kvöld með sigri eða jafntefli eða tapi undir 30 stigum.