Fréttir

Falur Harðarson nýr formaður KKD Keflavíkur
Körfubolti | 14. maí 2013

Falur Harðarson nýr formaður KKD Keflavíkur

 

Auka aðalfundur Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur var haldinn í gærkvöldi í íþróttahúsinu við Sunnubraut. Farið var yfir uppfærða stöðu mála deildarinnar (milliuppgjör), ásamt því að kosið var til formanns, meðstjórnenda og varastjórnar.

Einn aðili gaf kost á sér til formanns deildarinnar, en það var Falur Jóhann Harðarson. Mun hann því taka við hlutverki Hermanns Helgasonar, sem kveður stjórnina eftir 13 ára stjórnarsetu. Birgir Már Bragason gaf einnig ekki kost á sér í stjórn lengur, en hann hefur setið í stjórn frá 1997. Er þeim tveimur þakkað fyrir sín störf í gegnum árin fyrir klúbbinn. Einnig er Fali Harðarsyni óskað til hamingju með nýja embættið.

Meðstjórnendur í stjórn KKD Keflavíkur 2013-2014 eru eftirfarandi:
Albert Óskarsson
Guðjón Skúlason
Margeir Einar Margeirsson
Sævar Sævarsson

Varastjórn í KKD Keflavíkur 2013-2014 er eftirfarandi:
Ólafur Ásmundsson
Sigurður Markús Grétarsson
Davíð Þór Jónsson
Anna Pála Magnúsdóttir