Falur og Maggi hvíla í kvöld
Óvenju mikið álag er á leikmönnum m.fl. karla þessa dagana, það kemur því ekki á óvart að þjálfararnir, Guðjón og Falur, taki á það ráð að hvíla leikmenn þegar færi gefst. Í kvöld eru það Falur og Maggi sem hvíla þrátt fyrir að vera báðir ómeiddir og í leikhæfu ástandi. Liðið í kvöld er þannig skipað: Arnar Freyr, Davíð, Derrick, Gunnar E., Gunnar S., Halldór, Hjörtur, Jón, Nick og Sverrir.