Fréttir

Körfubolti | 2. nóvember 2003

Falur skaut Snæfell í kaf í 3ja leikhluta

Leikurinn gegn Snæfelli var ekki mikið fyrir auga, ef frá er skilinn þriðji leikhluti þar sem okkar venn settu í lás í vörninni og bombuðu gestina í kaf. Þar fór þjálfarinn Falur Harðarson fremstur í flokki og setti fjóra þrista á skömmum tíma. Staðan breyttist úr 38-39 í 67-52, Keflavík skoraði 29 stig gegn 13 í þriðja leikhluta og kláraði leikinn, ef svo má segja.

Snæfellsliðið er mun sterkara en á liðnum árum og ekki sjálfgefið að vinna það lengur, til þess þarf amk. ágætan varnarleik. Það tókst á köflum í kvöld, en sóknarleikurinn var frekar stirður.

Gunnar Einarsson átti góðan leik að vanda, skoraði 13 stig (100% skotnýting), átti 8 stoðsendingar og hirti 8 fráköst. Þegar hefur verið minnst á Fal, en auk þeirra átti Magnús góða spretti, þó mínúturnar hafi verið fáar. Nick Bradford var nokkuð góður, ekki síst í vörninni, slökkti algerlega í Whitmore (4 stig), en skoraði sjálfur 17 stig og hirti 14 fráköst. Derrick var með rólegra móti og fékk fá tækifæri, allt of fá, hann tók t.d. bara 10 skot í leiknum.

Tölur úr leiknum.

Evrópukeppnin færist nær en næst á dagskrá er Hópbílabikarinn. Þar er leikið heima og heiman, en fyrri leikurinn er í dag, sunnudag á útivelli.