Falur þarf að láta hreinsa "liðmýs" úr hnénu
Eins og Keflvíkingum er kunnugt hefur Falur Harðarson átt í hnémeiðslum um nokkuð langt skeið. Hann var farinn að finna verulega til í hnénu fyrir skömmu og lét m.a. tappa 60 ml. vökva úr hnáliðnum fyrir Portúgalsferðina. Eftir útileikinn gegn Ovarense fór allt í baklás og Falur haltraði um í nokkra daga. Nú hefur komið í ljós að hann hefur svokallaða "liðmús" sem eru lausar bein- eða brjóskflísar (að því sem Heimasíðunni skilst) inni í liðnum. Þessar flísar orsaka bólgur og sárskauka við áreynslu. Til að flikka upp á kappann þarf Falur að fara í "speglun" á næstu dögum, þar sem þessar flísar verða hreinsaðar burt. Eftir þá aðgerð þarf kallinn að hvíla sig í viku - 10 daga og getur svo farið að hreyfa sig á ný. Það er því full ástæða til að ætla að hann verði kominn á fullt um miðjan janúarmánuð, svona rétt áður en aðalfjörið fer að hefjast.
Hér sést Falur á fleygiferð gegn Ovarense