Fréttir

Körfubolti | 6. október 2003

Falur yfir 500 leikja markið

Þjálfarinn og leikmaðurinn Falur Jóhann Harðarson náði þeim merka áfanga í úrslitaleik Reykjanesmótsins að leika sinn fimmhundruðasta (500) leik fyrir Keflavík. Falur kemst þar með í merkilegan 3ja manna hóp þar sem aðeins eru tveir fyrir, þeir Guðjón Skúlason (729) og Jón Kr. Gíslason (529). Í þessum leikjum hefur Falur skorað um 5400 stig og er 19. í röðinni yfir stiga- og leikjahæstu menn úrvalsdeildarinnar frá upphafi mælinga og sá þriðji í röðinni í Keflavík. Hann er einnig 6. í röðinni yfir stoðsendingakónga úrvalsdeildarinnar frá upphafi.


Falur ásamt hinum þjálfara Keflavíkurliðsins og meðlimi í 500 leikja sveitinni

Falur lék sinn fyrsta leik með mfl. Keflavíkur í úrvalsdeild árið 1986, þá 18 ára að aldri. Núverandi leiktíð er hans 13. hjá félaginu, en auk þess lék hann í þrjú ár í bandaríska háskólanum Charleston Southern (sjá bolinn á myndinni) á árunum 1991-94 og eitt tímabil með KR, 1994-95 (auk nokkurra leikja leiktíðina á undan). Þar að auki náði Falur þeim fágæta árangri, einn fárra Íslendinga, að leika sem atvinnumaður í körfubolta, er hann lék í finnsku úrvalsdeildinni tímabilið 1999-2000. Þar gekk honum vel og öðlaðist hann m.a. góða reynslu í keppni á evrópskum vettvangi.

Falur hefur ávallt verið skemmtilegur leikmaður á að horfa. Hann geislar af leikgleði og hefur framkoma hans innan sem utan leikvallar ávallt verið til fyrirmyndar. Hans toppur til þessa á íslenskum vettvangi var eflaust úrslitakeppnin vorið 1999 þegar drengurinn gersamlega fór á kostum og átti afar stóran þátt í að tryggja Keflvíkingum Íslandsmeistaratitilinn í eftirminnilegu einvígi gegn nágrönnum vorum úr Njarðvík. Að lokinni þeirri leiktíð var Falur valinn besti leikmaður Íslandsmótsins.

Falur hefur fjórum sinnum orðið Íslandmeistari með Keflavík, 1989, 1997, 1999 og 2003, tvisvar Bikarmeistari, 1997 og 2003 og fjórum sinnum Fyrirtækjameistari (Kjörís-/Lengju-/Eggja) 1997, 1998, 1999 og 2003.

Aðalsmerki Fals hefur oft verið hraðinn og hefur hann oftar en ekki reynst varnarmönnum erfiður, þar sem hann getur hvoru tveggja, keyrt af krafti upp að körfunni og skotið langskotum af mikilli nákvæmni.

Falur á einnig að baki glæstan feril hjá landsliðinu. Hann er einn 10 leikmanna sem leikið hafa yfir 100 landsleiki, nánar tiltekið 106 og er hann númer 9 í röðinni yfir þá leikjahæstu. Einnig lék Falur 10 leiki með drengja- og unglingalandsliðum Íslands, en vart mun þeim leikjum fjölga.

Þrátt fyrir mikinn áhuga á að leika körfubolta gilda sömu líffræðilögmál um Fal og aðra, þ.e.a.s. hann verður ekki yngri. En það var stjórn deildarinnar verulega mikilvægt að Falur ákvað að leika með í vetur því hans reynsla mun eflaust hjálpa okkur mikið, ekki síst í Evrópubikarkeppninni. Enda hefur drengurinn (kallinn) farið vel af stað í haust, þó stundum gleymi hann að skipta sjálfum sér inná, enda orðinn þjálfari liðsins, eins og alkunna er.

Það er félagi eins og okkar mikill happafengur að "eiga" menn eins og Fal. Því ekki eingöngu leggur hann sig fram inni á leikvellinum, heldur er hann, ásamt konu sinni, Margréti, boðinn og búinn að aðstoða í hvívetna þegar leitað er til hans. Enda hefur hann unnið afar gott starf í þágu ungviðisins hjá félaginu.

Við viljum óska Fali Jóhanni til hamingju með þennan merka áfanga og megi leikirnir verða sem allra allra flestir. Stjórn körfuknattleiksdeildarinnar mun af þessu tilefni heiðra Fal á fyrsta heimaleik vetrarins, gegn Hamri á föstudaginn.

Hér má sjá tölfræði Fals úr deildarkeppni Íslandsmótsins. (og einnig frábæra mynd af pjakknum . . . :-)