Fréttir

Körfubolti | 17. febrúar 2004

Fannar á góðum batavegi en hægur bati hjá Fal

Fannar Ólafsson mætti á sína fyrstu æfingu í gær í langan tíma, eftir puttabrot og andlitsmeiðsl. Drengurinn má loksins reyna á sig og puttinn virkar vel. Andlitssárin eru að gróa og má gera ráð fyrir að Fannar sjáist bráðlega í Keflavíkurtreyjunni að nýju. Það er mikið tilhlökkunarefni fyrir Keflvíkinga. Til að byrja með er stefnt á að Fannar leiki með gegn Grindavík, þó verður tíminn að leiða í ljós hvort það verður mögulegt.

Falur er ekki alveg jafn hress, þar sem hann á enn erfitt með að hlaupa. Ekki er því ljóst hvenær hann verður klár í slaginn að nýju, en það gerist a.m.k. ekki á næstu dögum.

Og svo er bara að vona að Keflvíkingar noti Tindastólssparkið til að hressa sig aftur við og að strákarnir sýni aftur sitt rétta andlit í kvöld.