Fréttir

Körfubolti | 5. júlí 2004

Fannar er að skoða málin í Grikklandi

Fannar Ólafsson dvelur nú í Grikklandi þar sem hann æfir með félagsliðinu Age Halkidas. Liðið leikur sem stendur í 2. deildinni. Grikkir hafa löngum verið afar sterkir í körfubolta og voru t.d. Evrópumeistarar 1988, þegar þeirra frægasta stjarna, Nikos Galis, var enn í fullu fjöri.

Fannari hefur líkað vistin vel og ekki spillti fyrir að verða vitni að gleðinni sem ríkti vegna fótboltalandsliðsins. Hann var nokkuð sáttur með gang mála hjá liðinu og í dag gerðu Grikkirnir Fannari tilboð sem hann er að velta fyrir sér. Fannar kemur aftur til lands á miðvikudag.