Fannar fingurbrotinn - verður líklega frá í nokkrar vikur!!!
Sigurinn gegn ÍR var dýrkeyptur. Leikurinn leystist upp í hálfgerða vitleysu þar sem endalaust var verið að brjóta á mönnum. Dæmdar voru um 60 villur og Keflvíkingar fengu 35 vítaskot sem er afar mikið. Það segir sína sögu. Um leið og Keflvíkingar komust nálægt körfu ÍR-inga brutu þeir án afláts og oftar en ekki gróflega. Verst var að sjá þegar slegið var það harkalega á hendurnar á Fannari að hann fingurbrotnaði á þumalfingri hægri handar. Hrikalegt klúður þar sem úrslitin voru löngu ráðin og aðeins 2 sekúndur eftir af leiknum. Fannar fór á sjúkrahús þar sem hann var umsvifalaust settur í gips og honum sagt að hann yrði frá í 4-6 vikur. Þetta er mikið áfall fyrir Fannar og Keflavíkurliðið, þar sem glögglega mátti sjá í leiknum að Fannar er í feyknaformi og styrkir liðið gríðarlega. Framundan eru margir hörkuleikir, t.d. Bikarinn, Evrópukeppnin og grannaslagur gegn Njarðvík. Tímasetningin gat því vart verið verri. Fannar er harður af sér og mun reyna að komast í form sem fyrst, en svona meiðsl eru afar erfið því sársaukinn er mikill ef puttinn verður fyrir smávægilegu hnjaski og því er ómögulegt að leika körfubolta. Bara það eitt að skrifa með penna er nánast vonlaust, hvað þá meira! En Keflvíkingar verða víst að sætta sig við þetta og við vonumst eftir skjótum bata og að Fannar verði brátt kominn aftur í Keflavíkurtreyjuna, því þar á hann heima.