Fréttir

Körfubolti | 4. febrúar 2004

Fannar frá í að minnsta kosti tvær vikur enn - Falur byrjar að æfa í næstu viku

Gaman er frá því að segja að þeir lykilmenn okkar sem hafa verið fjarverandi vegna meiðsla eru á batavegi, þó ekki verði þeir leikhæfir á laugardaginn í Bikarnum. Falur hefur verið frá æfingum og keppni í sjö vikur vegna hnémeiðsla og fór í speglun fyrir skömmu, þegar læknadeilunni lauk. Hann hefur reynt að halda sér gangandi með lyftingum og slíku, en hefur ekki enn reynt á hnéð. Hann sagði í samtali við heimasíðuna að hann muni byrja að æfa eftir helgi og ætli að láta reyna á hnéð. Ef vel gengur má vonast eftir því að hann nái sér á strik innan tveggja vikna eða svo. Þó er ekkert öruggt í þessu máli.

Fannar fingurbrotnaði í sínum fyrsta leik fyrir Keflavík eins og menn muna. Hann fór í læknisskoðun í gær og þá kom í ljós að brotið var á mjög slæmum stað þar sem það var nærri liðamótum. Af þeim sökum má hann ekkert nota þumalfingurinn næstu tvær vikurnar, því mikil hætta er á smá hnjask gæti valdið varanlegum skaða. Fannar sagðist eiga tíma hjá lækni sínum næst 16. febrúar og hann vonast eftir því að skömmu síðar fái hann grænt ljós á að hefja æfingar á ný. Hann hefur sett markið á að ná þremur eða fjórum síðustu leikjunum í deildarkeppninni.

Þessum frábæru íþróttamönnum þykir auðvitað miður að geta ekki tekið þátt í Bikarúrslitunum, en við því er ekkert að gera. Meiðsli er hluti af leiknum og þeim verður að taka með jafnaðargeði. Við óskum þeim félögum góðs bata.