Fréttir

Körfubolti | 8. júlí 2004

Fannar gengur til liðs við Ase Dukas í Aþenu í Grikklandi

Fyrir skömmu ræddi heimasíðan við Fannar Ólafsson, en hann er staddur í Grikklandi við æfingar, eins og áður hefur verið greint frá. Í dag lék hann æfingaleik með liðinu sem heitir Ase Dukas og er í Aþenu. Fannari gekk vel í leiknum eins og á æfingum síðustu daga. Fyrir skömmu voru undirrituð drög að samningi milli hans og félagsins, en formlega á að ganga frá samningum á morgun. Fannar er ánægður með samninginn og einnig ánægður að fá tækifæri til að láta drauminn rætast og gerast atvinnumaður í körfubolta. Lið Fannars, Ase Dukas, er sem stendur í 2. deildinni í Grikklandi (þeirri næstefstu). Þeir unnu sig upp í þá deild fyrir ári og hafa sett markið hátt, að sögn Fannars.

Það eru ekki margir Íslendingar sem náð hafa þeim árangri, en einn hefur þó leikið í Grikklandi, Teitur Örlygsson lék með Larissa veturinn 1996-7. Sem stendur eru tveir Íslendingar atvinnumenn, Jón Arnór Stefánsson hjá Dallas Mavericks í NBA og Logi Gunnarsson hjá Giessen 49ers í þýsku Bundesligunni. Áður hafa leikið á erlendri grundu, til skemmri eða lengri tíma, Falur Harðarson í Finnlandi, Guðmundur Bragason í Þýskalandi, Herbert Arnarson í Hollandi og Belgíu og Grindvíkingarnir Helgi Jónas Guðfinnsson og Páll Axel Vilbergsson léku einnig í Belgíu. Friðrik Stefánsson lék um tíma í Finnlandi og einnig var, að okkur minnir, Hermann Hauksson til skamms tíma í Belgíu. Ekki skulum við gleyma Pétri Guðmundssyni sem er náttúrulega farsælasti atvinnumaður okkar Íslendinga í körfubolta. Jón Kr. Gíslason lék einnig með SISU í Danmörku í eitt ár, en auk hans léku í Danaveldi þeir Valur Ingimundarson og Kristinn Friðriksson, að ógleymdum Þorsteini Hallgrímssyni sem gerði garðinn frægan með SISU á sjöunda áratugnum. Einnig hefur Birgir Örn Bragason leikið í Þýskalandi um nokkurra ára skeið, nú síðast sem spilandi þjálfari í Regionalligu sem er eins konar 3ja deild þar. Þegar allt er upp talið eru það reyndar nokkuð margir sem reynt hafa fyrir sér sem atvinnumenn (eða hálf-atvinnumenn) á erlendri grundu. Og eflaust höfum við gleymt einhverjum . . .

Nema hvað, Fannar er á leiðinni til Grikklands og við samgleðjumst honum, þó vissulega skilji hann eftir sig skarð í Keflavíkurliðinu. Stjórn og þjálfari þurfa nú að setjast yfir málin og íhuga næstu skref, því markið er sett hátt í Keflavík eins og menn vita.

Fannari óskum við alls hins besta í atvinnumennskuni, hann á eflaust eftir að vinna hug og hjörtu áhorfenda þar, líkt og hann hefur gert hér í bæ á liðnum árum.