Fréttir

Körfubolti | 4. janúar 2004

Fannar Ólafsson kemur til Keflavíkur

Þá er það ákveðið! Fannar Ólafsson, miðherjinn sterki sem lék með Keflavík í þrjár leiktíðir, 97/98, 98/99 og 99/00 mun snúa aftur til Keflavíkur og leika með gamla félagi sínu til loka þessarar leiktíðar. Fannar verður löglegur með Keflavík mánudaginn 12. janúar, en mætir líklega á sína fyrstu æfingu þriðjudaginn 6. jan.

Vegna kennaraverkfalls við háskóla Fannars í Bandaríkjunum, IUP, hefur námsáætlun hans farið úr skorðum. Niðurstaða þess er sú að hann mun snúa aftur til Íslands og ljúka námi hér. Fannar, sem er 25 ára, leggur stund á viðskiptafræði.

Fannar hefur á undanförnum árum leikið vel með skóla sínum og á yfirstandandi leiktíð hefur hann skorað að meðaltali 9,3 stig og hirt 7,7 fráköst. Fannar er einn tveggja helstu miðherja íslenska landsliðsins og mun án efa styrkja okkar lið verulega í báráttunni sem framundan er. Fannar vakti á sínum tíma mikla athygli meðal Keflvíkinga fyrir baráttugleði. Hann er stór og sterkur og hefur eflaust lært eitthvað á vist sinni í Ameríku undanfarin þrjú ár.

Heimasíðan og aðrir Keflvíkingar bjóða Fannar aftur velkominn til félagsins og við vonum að dvölin verði farsæl.

 


Hér sést Fannar í IUP búningi.