Fannar Ólafsson til Ulm í Þýskalandi
Fram kemur í Fréttablaðinu í dag að Fannar Ólafsson sé genginn til liðs við Ulm í þýsku 2 deildinni. Fannar skifti sem kunnugt er frá Keflavík yfir til Gríska liðsins Doukas Athens í enda sumars. Ulm er í suðurriðli þýsku 2. deildarinnar, hefur unnið 14 af 18 leikjum. Á heimsíðu Ulm er komu Fannars fagnað og talað um að hann hafi sýnt góð tilþrif á æfingum. Við vonum að Fannar nái að sýna hvað í honum býr í þýskalandi, enda Fannar mikill baráttuhundur og stemmingsleikmaður.
Heimasíða Ulm.