Fannar verður með í kvöld, en Hjörtur enn frá vegna sýkingar
Eins og menn sáu í Grindavíkurleiknum á laugardaginn þá missteig Fannar sig undir lok leiks og varð að yfirgefa völlinn. Atvikið leit ekki sérlega vel út, en Fannar hefur náð ágætum bata á undanförnum tveimur dögum og ætlar að láta reyna á löppina í kvöld.
Hjörtur varð fyrir því óláni um daginn að fá sýkingu í eyra og er í lyfjameðferð vegna þess. Sýkingin veldur miklum óþægindum og gerir hann óleikfæran. Hjörtur gat ekki leikið s.l. laugardag og mun heldur ekki geta leikið í kvöld. Vonir standa þó til að þess að hann verði búinn að ná sér fyrir 3ja leikinn sem verður á föstudaginn.