Fréttir

Fimm ungir og efnilegir skrifa undir hjá Keflavík
Karfa: Karlar | 8. maí 2013

Fimm ungir og efnilegir skrifa undir hjá Keflavík

Undirbúningur fyrir næsta tímabil stendur yfir þessa stundina í herbúðum Keflavíkur auk þess sem verið er að líta til framtíðar. Liður í því er m.a. að gera samninga við unga og efnilega leikmenn sem félagið bindur væntingar og vonir til að verði burðarstólpar í liðinu þegar  fram í sækir á næstu árum. 

Að því tilefni skrifuðu fimm ungir leikmenn undir samning við liðið í gær til næstu tveggja ára en þetta eru þeir Aron Freyr Kristjánsson, Hilmir Gauti Guðjónsson, Sigurþór Ingi Sigurþórsson, Birkir Örn Skúlason og Tryggvi Ólafsson. Allt eru þetta leikmenn sem eiga framtíðina fyrir sér og munu koma til með að banka á dyr meistaraflokks Keflavíkur á næstunni.