Fréttir

Körfubolti | 26. febrúar 2004

Fimmhundraðasti (500) leikurinn hjá Gunnari Einarssyni fyrir Keflavík í kvöld gegn KR

Í kvöld gegn KR kemst Gunnar Einarsson, fyrirliði og íþróttamaður ársins hjá Keflavík, í sérdeilis merkilegan hóp fárra útvalda. Hann leikur í fimmhundruðasta skiptið fyrir Keflavík í meistaraflokki, samkvæmt staðfestum heimildum frá Sigurði Valgeirssyni, en aðeins hafa þrír leikmenn afrekað það á undan Gunnari. Það eru þeir Guðjón Skúlason, Jón Kr. Gíslason og Falur Harðarson sem náði þeim áfanga fyrr á leiktíðinni.

Gunnar er yngstur þeirra sem náð hafa þessum árangra, enda er hann aðeins 27 ára að aldri, og ef svo heldur fram sem horfir gæti hann gert atlögu að leikjameti Guðjóns sem en Gaui lék ríflega 700 leiki fyrir félagið. Athuga ber að taldir eru allir leikir fyrir félagið, t.d. Íslandsmót, bikarkeppnir, úrslitakeppnir, Reykjanesmót og Evrópukeppnir.

Við óskum Gunnari til hamingju með áfangann og vonum að tímamótaleikurinn verði minnisstæður, á skemmtilegan hátt, auðvitað. Stjórnin mun heiðra Gunnar fyrir afrek sitt á fyrsta heimaleiknum í úrslitakeppninni.