Fréttir

Karfa: Yngri flokkar | 26. janúar 2009

Fín helgi hjá stúlknaflokki

Þriðja umferð í A-riðils Stúlknaflokks (f.91 og 92) var leikin um helgina. Það eru fimm stelpur í þessum flokki sem æfa að jafnaði með 10.flokki kvenna en auk þeirra tilheyra þær Ástrós Skúladóttir, Lóa Dís Másdóttir og Stefanía Bergmann þessum aldurflokki, en þær æfa með meistaraflokki.  Restin af  liðinu er skipað stelpum úr 10.flokki (f.93) og í einhverjum tilfellum 9.flokki (f.94).  Fyrstu tveir leikirnir fóru fram í Keflavík og síðari hluti mótsins fór fram að Ásvöllum í Hafnarfirði.

 

Fyrsti leikurinn var við Njarðvík og var jafnræði með liðunum í fyrri hálfleik.  Í þriðja leikhluta hertu okkar stelpur betur á vörninni og náðu góðu forskoti sem þær bættu stöðugt við eftir því sem leið á leikinn.  Frábær seinni hálfleikur hjá stelpunum, fín vítanýting og í það heila traustum sigri landað.

Keflavík- Njarðvík

82-58 (14-10, 31-29, 56-43 )

Stigaskor Keflavíkur:

María Ben 21, Ástrós 10, Lóa Dís 10, Sigrún 9, Árný 8, Árnína 7, Telma Lind 7, Jóna 6, Júlía 3, Fanney 2

vítanýting 17/25 eða 68%

 

Annar leikurinn var við Snæfell sem hefur hávöxnu og kraftmiklu liði á að skipa þar sem allt þeirra byrjunarlið á sæti í unglingalandsliðinu auk þess sem þær skipa kjarnann í meistaraflokki félagsins.  Okkar stelpur komu ákveðnar til leiks, náðu þægilegu forskoti strax í fyrsta leikhluta sem þær létu aldrei af hendi og unnu góðan sigur.    

Keflavík- Snæfell

68-48 (35-20, 60-38, 60-38)

Stigaskor Keflavíkur:

Lóa Dís 13, Ástrós 11, Anita 9, María Ben 9, Telma Lind 8, Sigrún 5, Árnína 4, Jóna 3, Eva Rós 3, Sólveig 2.

vítanýting 9/15 eða 60%

 

Þriðji leikurinn var gegn Fjölni sem kom upp úr B-riðli. Þrátt fyrir það hafa þær nokkrar stelpur sem eru að leika lykilhlutverk með meistaraflokki félagsins.  Strögl var á okkar stelpum framan af leik og gekk þeim erfiðlega að hrista Fjölnisstelpur almennilega af sér.  Það dró þó í sundur með liðunum er líða tók á leikinn og þegar upp var staðið var öruggur sigur í höfn.

Keflavík- Fjölnir

76-48 (19-14, 43-25, 56-38)

Stigaskor Keflavíkur:

María Ben 17 (7/7 í vítum), Eva Rós 17, Stefanía 13, Ástrós 10, Soffía Rún 9, Jóna 6, Telma Lind 4.

vítanýting 13/23 eða 56,5%

 

Lokaleikurinn var gegn Haukum og var þar um mikinn baráttuleik að ræða.  Haukarnir komu ákveðnir til leiks og ekkert gekk í sóknarleiknum hjá okkar stelpum í byrjun leiks.  Þær settu einungis 6 stig í fyrsta leikhluta og líklega hefðu Haukastelpur klárað leikinn í fyrri hálfleik ef ekki hefði komið til ágætis vörn og góð barátta sem dugði til að halda stigaskori þeirra í skefjum.  Undir lok þriðja leikhluta náðu okkar stelpur að jafna leikinn og komast tveimur stigum yfir 30-28 en þá náðu Haukar góðum kafla og skoruðu átta stig í röð.  Þessum mun náði Keflavík ekki almennilega niður aftur og fyrsta tap vetrarins á Íslandsmótinu var orðið að veruleika.  Vítanýting okkar var sú allra versta í mótinu að þessu sinni og átti sinn þátt í að svo fór sem fór.

Keflavík-Haukar

43-49 (6-15, 17-26, 32-36)

Stigaskor Keflavíkur:

María Ben 14, Eva Rós 13, Sigrún 6, Ástrós 4, Lóa Dís 4, Telma Lind 2.

vítanýting 6/16 eða 37,5%

 

Fín helgi hjá Keflavíkurstúlkum í það heila en auk þessara leikja léku margar þeirra gegn Ármanni í 1. deild kvenna á laugardag.  Stúlknaflokkur hefur þegar tryggt sér heimavallarréttinn í 4.umferðinni sem leikin verður 14. og 15. mars.  Í undanúrslitum Íslandsmótsins munu síðan mætast annars vegar sigurvegarar 4. umferðar og liðið sem verður í fjórða sæti og hins vegar liðin í öðru og þriðja sæti.