Fréttir

Körfubolti | 9. ágúst 2005

Finnlandsfréttir frá Helsinki

Á laugardagskvöldið var diskótek fyrir keppendur og fóru stúlkurnar uppstrílaðar og í svo miklu stuði að erfiðlega gekk að draga þær heim í koju.  Á meðan á diskótekinu stóð neyddist karlpeningurinn að fara í þjóðlegt matarboð í sauna að hætti Finna sem innihélt að sjálfsögðu sundsprett í einu af þúsund vötnum landsins.  Sjúkraflutnings- og slökkviliðsmaðurinn Ásgeir Þórisson sýndi óvænta loftfimleika á stökkbrettinu og vildi helst vera ofan í köldu vatninu á meðan að hin skræfan, Falur Harðarson kunni betur við sig í hitanum.

Mótinu lauk á hádegi á sunnudag með því að Keflavík 1 lenti í fjórða sæti og Keflavík 2 í því fimmta.  Allir eru sammála um að liðið hefði leikið til úrslita ef hópnum hefði ekki verið skipt upp í tvö jöfn lið.  Allir eru reynslunni ríkari og hópurinn vel tilbúinn fyrir átök vetrarins með það að markmiði að verja Íslandsmeistaratitilinn.

Eftir mótið hélt hópurinn aftur til Helsinki og fór fínt út að borða á sunnudagskvöldinu, en óhætt er að segja að hópurinn hafi verið orðinn þreyttur á mötuneytisfæðinu.  Euro Hostel kom skemmtilega á óvart, en misjafnt er hvort fólki líkar betur við vindsængina eða krossviðinn.

Í dag var þéttsetin dagskrá sem byrjaði á því að allur hópurinn fór með ferju út í dýragarð sem er á eyju rétt fyrir utan Helsinki.  Eftir dýragarðinn fékk hópurinn að velja á milli búðarrölts eða tívolíferðar og skiptist hópurinn í tvennt, en ekki voru allir tilbúnir að fara í tívolí eftir rigninguna í dýragarðinum.

Er heim á gistiheimili var komið voru allir þreyttir en ánægðir með daginn ekki síst þar sem stytti upp um kvöldmatarleytið.

Á morgun er stefnan sett á vatnsrennibrautagarðinn í Serena enda er spáð sól og 25 stiga hita.  Það er eins gott að sú spá standi ;-)


Stelpurnar mættar á diskótekið


Á diskóteki


Á diskóteki


Á diskóteki


Lukkudýrið í mesta basli með reykinn


Beðið eftir lestinni í Tampere


Á brautarstöðinni í Helsinki


Á leið í dýragarðinn


Atriði úr myndinni Titanic æft