Fréttir

Karfa: Konur | 24. mars 2011

Fjölmennum í Toyota Höllina á morgun!

Þriðji leikur Keflavíkur og KR í 4-liða úrslitum Iceland Express deildar kvenna fer fram á morgun í Keflavík. Bæði lið hafa unnið sinn heimaleik í einvíginu og er staðan því jöfn 1-1. Það er klárt að hart verður barist og hvorugt lið mun kasta inn handklæðinu fyrr en allar klær hafa verið fullnýttar. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og er mikilvægt að stelpurnar fái þann stuðning frá áhorfendum sem þær eiga skilið. Fjölmennum í húsið og hvetjum stelpurnar til dáða!

Áfram Keflavík!