Fjölmiðlafundi vegna Poweradebikarsins lokið
Fjölmiðlafundur sem KKÍ hélt á Hótel Nordica var að ljúka. Þar komu saman þjálfarar- og fyrirliðar liðanna fjögurra sem taka þátt í bikarúrslitaleikjunum á laugardaginn í Laugardalshöll. Okkar fulltrúar á staðnum voru Sigurður Þ. Ingimundarson og Pálína Gunnlaugsdóttir. Ekki var annað að heyra á þeim en þau hlakki til helgarinnar og búist við skemmtilegum leik. Engin meiðsli eru í hópnum og hafði Sigurður það á orði að forvitnilegt yrði að sjá hvernig hans lið myndi koma undirbúið í leikinn því þetta sé í fyrsta skipti í vetur sem þær mæti liði sem þær hafi þegar tapað fyrir í vetur...
Mynd: Brans / Pálína Gunnlaugsdóttir og Guðbjörg Sverrisdóttir tókust á um bikarinn en ljóst er að aðeins önnur þeirra fær hann í hendurnar á laugardag.