Fréttir

Karfa: Karlar | 2. september 2011

Fjölnir lagði Keflavík í gær

Fjölnismenn komu, sáu og sigruðu í gær þegar þeir mættu til leiks í Toyota Höllinni gegn Keflavík í Reykjanes Cup Invitational mótinu. Lokatölur voru 90-95 í framlengdum leik. Nánari tölfræði um leikinn liggur því miður ekki fyrir.

Í kvöld verður leikið um sæti í mótinu í Ljónagryfjunni í kvöld. Þar mæta Keflvíkingar Njarðvíkingum.

Eftirfarandi leikir verða spilaðir í kvöld í Ljónagryfjunni:

Kl. 17:00
Njarðvík og Keflavík spila um 5. sætið.

Kl. 19:00
Fjölnir og ÍR spila um 3. sætið.

Kl. 21:00
Snæfell og Grindavík spila um úrslitasætið.