Fréttir

Körfubolti | 4. febrúar 2003

Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn býður áhorfendum frítt í garðinn á milli leikja

Eins og margir hafa tekið eftir er "dauður tími" milli úrslitaleiks kvenna og úrslitaleiks karla á laugardaginn. Kvennaleikurinn hefst um kl. 13 og verðlaunaafhendingu verður líklega lokið fyrir kl. 15. Karlaleikurinn hefst síðan kl. 16.30 og er kannski heppilegt að vera kominn í hús kl. 16. Þar á milli er um einnar klukkustundar "bið". Til þess að fjölskyldur geti notið borgarferðarinnar og bikarúrslitanna sem best hefur KKÍ náð samkomulagi við Fjölskyldu- og húsdýragarðinn um ókeypis aðgang fyrir þá sem koma á Bikarleikinn.

Hér er kjörið tækifæri fyrir fjölskylduna á að skreppa til Reykjavíkur og fara á bikarúrslitaleik kvenna og styðja stúlkurnar, skreppa svo í Húsdýragarðinn og skoða það sem hann hefur upp á að bjóða og enda daginn svo aftur í Höllinni á bikarúrslitaleik karla. Allt þetta fyrir aðeins 1.000 krónur fyrir fullorðna og 500 krónur fyrir börn!!!