FJÖR Á FÖSTUDAGINN ÞEGAR NJARÐVÍK KEMUR Í SLÁTURHÚSIÐ - toppslagur í deildinni og forsmekkur fyrir Bikarinn!
Þá er komið að "grönnum" - 2svar á rúmri viku mætast erkifjendurnir og uppáhalds andstæðingarnir úr Keflavík og Njarðvík á körfuboltavellinum. Á föstudaginn er fyrri leikurinn þegar Njarðvík kíkir í Sláturhúsið og svo er sjálfur Bikarúrslitaleikurinn laugardaginn 7. febrúar.
Leikurinn á föstudaginn hefur mikla þýðingu fyrir bæði liðin sem eru í bullandi baráttu um toppsætin í INTERSPORT-deildinni. Grindavík var með mikla forystu fyrir skömmu en hefur tapað tveimur leikjum og opnað baráttuna upp á gátt. Snæfell er sannkallað spútnik-lið deildarinnar og er nú aðeins tveimur stigum á eftir Grindavík og síðan koma Njarðvík og Keflavík í humátt á eftir. Telja má líklegt að það félag sem tapar leiknum eigi afar litla möguleika á efsta sætinu, en sigurliðið á enn smá von í baráttunni við Grindavík og Snæfell.
Leikurinn er líka athyglisverður fyrir þær sakir að stutt er í Bikarúrslit KKÍ & Lýsingar og munu menn eflaust meta möguleikana á Bikartitli út frá þessum leik. Slíkt getur þó verið varhugavert þar sem það er löngu sannað mál að þegar þessi lið mætast getur allt gerst, ansi oft er það hið margfræga "dagsform" sem ræður úrslitum.
Liðin sjálf eru gríðarsterk. Sá sem þetta ritar er reyndar þeirrar skoðunar að þetta séu tvö bestu lið landsins, jafnvel þótt þau séu aðeins í 3ja og 4ða sæti deildarinnar. Útisigrar í undanúrslitum bikarsins gegn tveimur topp liðunum sýna ótvírætt hvers þau eru megnug þegar á reynir.
Meiðsli eru í báðum herbúðum. Hjá Njarðvík verður Brenton Birmingham fjarverandi, ef marka má fréttir, þar sem hann fékk slæmt högg á kálfa í síðasta leik. Mikið blæddi inn á vöðva og er hann mikið bólginn og illa haldinn. Menn gera jafnvel ráð fyrir því að hann verði fjarverandi í nokkrar vikur. Slæmt fyrir Njarðvík því Brenton er vissulega burðarás í liðinu. Friðrik þjálfari hefur gefið það út að hugsanlega munu Njarðvíkingar leita eftir erlendum leikmanni til að fylla skarð Brentons, en varla gerist það fyrir föstudaginn, þó vitum við ekkert um það.
Keflavík hefur heldur ekki farið varhluta af meiðslum. Stigahæsti Íslendingurinn, þjálfarinn Falur Harðarson, hefur verið fjarverandi frá leiknum gegn Ovarense fyrir rúmum mánuði síðan vegna hnjámeiðsla. Hann er þó farinn að hreyfa sig að nýju og stefnir á að vera tilbúinn í slaginn eftir viku til 10 daga. Þó er alls ekki víst að hann nái fullum bata, því miður. Fannar Ólafsson er einnig meiddur, en það var jú sérlega sorglegt að sá sterki og stóri baráttuhundur skyldi puttabrotna í sínum fyrsta leik. Fannar hefur þó mætt á æfingar og haldið sér í formi, en fingurinn þarf enn nokkurn tíma til að jafna sig. Bjartsýnustu menn vona að hann geti verið með í Bikarleiknum en Heimasíðan telur það ólíklegt þar sem meiðsli á þumalfingri eru afar erfið viðureignar.
Ef liðin eru borin saman (gerum ráð fyrir að allir ofangreindir verði fjarverandi) kemur í ljós að baráttan undir körfunum verður geysihörð. Njarðvík hefur Friðrik Stefánsson sem er án efa öflugasti miðherji landsins og gríðarsterkur varnarmaður, Pál Kristinsson, Egil skotblokkara Jónasson og Halldór Karlsson, en Keflavík hefur Derrick "duglega" Allen, Nick Bradfor, Jonna og Halldór. Varnarlega eru liðin líklega áþekk undir körfunum en sóknarlega ætti Keflavík að hafa smá yfirburði, sérstaklega þar sem Nick og Derrick skora oftar en ekki 20 stig, og hefur Nick leikið mun betur síðustu vikur en í upphafi móts. Egill er skeinuhættur og getur varið allt að 10 skotum.
Útileikmennirnir eru þó nokkuð ólíkir. Njarðvík hefur fyrst og fremst Brandon sem er mikill skorari og afbragðs skytta. Hann er auk þess stoðsendingakóngur liðsins og þriðji besti frákastarinn. Hafa verður góðar gætur á honum, bæði utan 3ja stiga línunnar og eins á keyrslum hans upp að körfunni. Síðan er Guðmundur Jónsson afar hættulegur leikmaður, sérstaklega í 3ja stiga skotum, eins og við sáum glögglega í Hópbílaúrslitum. Guðmundur er "stuðkall" sem getur hrokkið í gírinn og bombað þristum í gríð og erg. Gegn Grindavík á dögunum setti hann t.d. 5 þrista á stuttum tíma í fyrri hálfleik. Keflavíkurmegin er breiddin meiri, þó enginn einn sé jafnoki Brandons í stigaskorun. Gunnar Einars hefur átt stórgott tímabil og getur jafnt skorað að utan og í teignum, þó það verði erfiðara gegn hávaxinni vörninni. Síðan eru Maggi Gunnars, Hjörtur, Sverrir Þór allir öflugir leikmenn sem geta átt góða daga. Arnar Freyr, Davíð og Gunnar Stef geta síðan allir átt innkomur sem skipta sköpum. Þannig að niðurstaðan er sú að breiddin er meiri okkar megin, en við höfum engan skorara sem er jafn stöðugur og Brandon. Mikið veltur á því að okkar menn mæti rétt stemmdir og leiki grimma vörn, því í kjölfarið verður oft hittnin betri, það hefur marg oft sýnt sig.
Jæja, nóg um þetta í bili. Allt getur gerst, eins og ávallt þegar þessi lið mætast. Á pappírum erum við kannski sterkari, ekki síst ef Brenton verður fjarverandi, en allir vita að fjarvera lykilmanns getur oft framkallað auka kraft hjá hinum leikmönnum. Þetta þarf Keflavík að varast og menn verða að leggja höfuðáherslu á grimmd og hraða, því breiddin er okkar megin, en hún nýtist ekki nema leikurin sé verulega erfiður.