Fjör í körfuboltaskóla
Alla þessa viku 8.- 12. ágúst hafa um 40 krakkar tekið þátt í körfuboltaskóla Keflavikur undir vaskri stjórn þeirra Guðbrands og Sigurðar landsliðsþjálfara. Skemmtunin var í fyrirrúmi, þó öll helstu grunnatriði körfuboltans hafi verið tekin fyrir. Einnig var mældur árangur í nokkrum tæknigreinum körfuboltasambandsins ásamt æfingum frá þjálfurum skólans. Landsliðsmenn komu í heimsókn og spiluðu með krökkunum.
Ungingaráð köruknattleiksdeildarinnar þakkar þeim Guðbrandi og Sigurði fyrir sín störf, Loga, Agli og Magnúsi landsliðsmönnum fyrir heimsóknina og einnig þeim krökkum sem tóku þátt í skólanum. Vonast stjórn unglingaráðsins eftir því að sjá sem flest í vetur á körfuboltaæfingum sem fara af stað fljótlega eftir að skólar hefjast.
U.k.k.d.Keflavíkur

