Fréttir

Körfubolti | 28. mars 2005

Fjórði leikurinn á morgun í Seljaskóla kl. 20

Leiktímanum í fjórða leiknum hefur verið breytt sökum beinnar útsendingar á Sýn. Hefst leikurinn kl. 20.00 en ekki kl. 19.15 eins og áður hafði verið tilkynnt. ÍR-ingar hafa ákveðið að banna trommur og önnur hávaðasöm tæki í húsinu þeirra og verða því stuðingsmenn Keflavíkur að nota hendur, fætur og raddbönd í meira mæli en oft áður til að taka húsið með trompi, en gera má ráð fyrir hörku stemmingu og góðri mætingu.

Vegna breytingar á tímasetningu verður sætaferðum seinkað og fara rútur frá íþróttahúsinu að Sunnubraut kl. 18.00 til Reykjavíkur. Rútuferðirnar eru í boði Sparisjóðsins og farþegum að kostnaðarlausu.

Nú jæja, að leiknum. ÍR-ingar eru með "bakið upp að veggnum" eins og stundum er sagt, því ef þeir tapa eru þeir úr leik. Í slíkri aðstöðu mæta leikmenn oftast ljóngrimmir til leiks, tilbúnir að leggja allt sitt af mörkum til að halda áfram í keppninni. Einnig skiptir sjálfstraustið miklu máli fyrir þá, spurning hvort þeir hafi virkilega trú á því að þeir geti sigrað Keflavík, eða hvort þeir hafi í raun innst inni viðurkennt að þetta verkefni sé of erfitt. ÍR-ingar hafa átt nokkra góða leiki í úrslitakeppninni, en ekki náð að veita okkar mönnum mikla keppni í síðustu tveimur leikjum. Við megum því búast við að þeir leggi allt í sölurnar á morgun. Eins og áður er lykilatriðið að gefa hvorki Eiríki né Dixon færi á að komast í stuð. Þeir búa til færin og geta gert usla. Grant er sterkur og hann mun setja sín 20 stig og hirða fullt af fráköstum. En það gerir ekki útslagið. Hins vegar geta ÍR-ingar verið afar grimmir í fráköstum, ekki síst sóknarmegin, og ef okkar menn eru annars hugar munu þeir refsa okkur fyrir það.

Okkar menn vita vel að Keflavíkurliðið er sterkara en ÍR. En fyrsti leikurinn sýndi að það er ekki nóg að vera sterkur á pappírnum, því Keflavíkurliðið getur verið lélegt ef það vill. Og oft hefur Seljaskóli reynst erfiður á undanförnum árum. Það er því lykilatriði að hugarfarið sé rétt, að killer-instinctið sé til staðar, að vörnin sé mætt til leiks frá fyrstu sekúndu. Við höfum séð það svo greinilega að góður varnarleikur gefur færi á svo mörgum auðveldum körfum, að jafnvel þó skot utan af velli hafi alls ekki dottið í venjulegum mæli, þá hefur árangurinn verið góður. Ef hins vegar menn eru með hugann við annað en varnarleikinn, þá lendum við í erfiðleikum. Maggi, Gunni o.fl. mættu líka dúndra niður nokkrum þristum, það myndi auðvelda allt saman, en einhverra hluta vegna er 3ja stiga nýting okkar arfaslök um þessar mundir. Glover og Nick eru illviðráðanlegir undir körfunum, en þeir verða að gæta sín með villurnar, hafa of oft verið í vandræðum. Síðan verða Arnar og Sverrir að nýta hraða sinn og útsjónarsemi til að opna vörnina og finna fría manninn, en Jonni og Glover ná oft að lauma sér í eyðurnar ef keyrt er að körfunni.

Og svo verða áhorfendur náttúrulega að leggja sitt af mörkum! Nú er bara að gera út um einvígið, best að gera það strax á morgun, en ef það ekki tekst, þá er oddaleikur í vændum á fimmtudaginn hér í Keflavík.

ÁFRAM KEFLAVÍK!!