Fréttir

Körfubolti | 29. nóvember 2003

Fjórir (4) erfiðir leikir á næstu 10 dögum hjá Keflavík

Það er ekki ofsögum sagt að leikjaprógrammið hjá meistaraflokki karla sé nokkuð stíft þessa daganna. Fram að jólum eru þrír leikir eftir í B-riðli Vesturdeildarinnar í Bikarkeppni Evrópu, fjórir leikir í Intersport-deildinni og einn í Bikarkeppni KKÍ & Lýsingar. Þessir átta leikir fara fram á 20 dögum, frá 1. - 21. des. Fyrstu fjórir leikirnir eru næstu 10 daga og allir verða fyrir fram að teljast erfiðir, þó Evrópuleikirnir séu þar í ákveðnum sérflokki. Skoðum næstu fjóra leiki.

Á mánudaginn mætir Keflavík toppliði Grindavíkur sem enn hefur ekki beðið ósigur í Intersport-deildinni eftir sjö umferðir. Þessi leikur er afar mikilvægur fyrir framvindu deildarinnar, því með sigri læðist Keflavík upp að hlið Grindavíkur ásamt Njarðvík og Snæfelli, en ef Grindavík vinnur, þá halda þeir fjögurra stiga forskoti á næstu lið og við dettum niður í miðja deild, ef svo má segja, niður í 4. - 6. sæti. Þess vegna verður eflaust lögð ofuráhersla á sigur gegn sterkum Grindvíkingum sem hafa endurheimt Helga Jónas Guðfinnsson.

Á föstudaginn koma síðan KR-ingar í heimsókn til Keflavíkur. KR hefur, eins og svo oft áður, ekki náð að standa fyllilega undir væntingum þrátt fyrir ágætan leikmannahóp. Þeir eru í 5.-6. sæti deildarinnar um þessar mundir, komust ekki í hóp hinna fjögurra fræknu og eru dottnir úr Bikarnum. Þeir verða því eflaust grimmir, því tap gegn okkur sendir þá niður í algera meðalmennsku.

Á sunnudaginn næst komandi höldum við síðan í fyrsta skiptið til Þorlákshafnar í keppni í efstu deild. Þórsarar hófu leiktíðina af krafti og unnu tvo fyrstu leiki sína, en síðan hefur verulega hallað undan fæti og þeir hafa tapað öllum leikjum sínum. Heimavöllurinn þeirra er samt sterkur og mun þeir eflaust gera sitt besta á móti Íslandsmeisturunum. Ljóst er að hættulegt getur verið að mæta til Þorlákshafnar ef hugarfarið er ekki í lagi.

Miðvikudaginn 10. des. er síðan komið að næsta stórleik, þegar franska liðið Hyeres-Toulon Var kemur í heimsókn. Frakkarnir hafa á gríðarlega sterku liði að skipa og er eina félagið sem vann okkur í fyrri umferð B-riðilsins. Þeir hafa samt valdið ákveðnum vonbrigðum í hinum leikjum sínum í Evrópukeppninni, töpuðu gegn Madeira á útivelli og einnig gegn Ovarense á heimavelli. Það verður gríðarleg stemming í kringum þennan leik, því ef Keflavík nær enn einum heimasigri hljóta líkurnar á áframhaldandi þátttöku að vera afar góðar. En . . . fyrst eru þrír mikilvægir deildarleikir á dagskrá!