Fjórir Keflavíkingar í landsliðshópnum
Sigurður Ingimundarsson er búinn að velja 12 manna hópinn sem mun spila við Hollendinga og Kínverja nú í lok ágúst. Liðið leikur einnig við Dani og Rúmena 3. og 10. september hér heima í Evrópukeppninni. Liðið er það sterkasta sem Ísland hefur náð að stilla upp í langan tíma. Gunnar Einarsson kemur inn í liðið eftir nokkra fjarveru vegna meiðsla og Jón Hafsteinsson er einnig komin í hópinn eftir að hafa verið að jafna sig eftir uppskurð á hné.
Leikurinn við Dani verður 3. september í Keflavík og hefst kl. 14.00. (Ljósanótt)
Hópurinn er skipaður eftirfarandi leikmönnum:
Magnús Þór Gunnarsson. Keflavík, 24 landsleikir
Gunnar Einarsson. Keflavík, 27 landsleikir
Jón Hafsteinsson. Keflavík, 30 landsleikir
Arnar Freyr Jónsson. Keflavík, 15 landsleikir
Friðrik Stefánsson. Njarðvík, 79 landsleikir
Jakop Sigurðsson. Leverkusen, 14 landsleikir
Jón Arnór Stefánsson. Napoli, 30 landsleikir
Logi Gunnarsson. Giessen 49ers, 31 landsleikir
Sigurður Þorvaldsson. Wonn aris Leeuwarden, 24 landsleikir
Helgi Magnússon. Catawba. College, 32 landsleikir
Egill Jónasson. Njarðvík, 4 landsleikir
Hlynur Bæringsson. Wonn aris Leeuwarden, 19 landsleikir