Fréttir

Körfubolti | 23. nóvember 2004

Fjórir útisigrar hjá íslenskum liðum í 40 ár !

Það eru ekki til margar frægðarsögur af árangri íslenskra félagsliða í Evrópukeppni á útivöllum. Aðeins fjórum sinnum hefur Íslendingum tekist að landa sigri, fyrst árið 1964 á Norður-Írlandi. Keflvíkingar eiga þátt í tveimur af þessum útisigrum, sá fyrri var ásamt Njarðvík undir merkjum ÍRB. Þetta eru útisigrarnir:

1964, 19. des.
Evrópukeppni meistaraliða
Collegians (Norður Írlandi) – ÍR í Belfast: 47-63

1989, 4. okt.
Evrópukeppni félagsliða
Hemel Hempstead (Englandi) - KR í London: 45-53

1999
Evrópukeppni félagsliða
Huima (Finlandi) – ÍRB í Äänekoski: 79-100

2004, 23. nóv.
Fiba Bikarkeppni Evrópu
Reims (Frakklandi) - Keflavík í Reims: 94-106

Meira um Evrópuleiki íslenskra félgagsliða á heimasíðu KKÍ.