Fréttir

Körfubolti | 24. nóvember 2003

Flottar K-húfur til sölu!

Körfuknattleiksdeildin hefur látið hanna og prjóna fyrir sig þrælflottar K-húfur. Þær eru dökkbláar með nýja K-merkinu. Húfurnar verða seldar á leiknum á miðvikudaginn og einnig verða þær til sölu í Kóda og Skóbúðinni á Hafnargötunni. Húfan kostar aðeins 1200 kr. Tilvalið að allir Keflvíkingar klæði sig í K-húfur nú þegar kuldinn kemur í heimsókn. Einnig ákjósanleg í jólapakkann :).