Fréttir

Körfubolti | 4. desember 2003

Flottur föstudagur framundan: Hörkuleikur Keflavík og KR . . . og síðan "Idol" í sjónvarpinu :)

Idol-stjörnuleit er ótrúlega vinsæll sjónvarpsþáttur og vilja eflaust margir horfa á beina útsendingu annað kvöld á Stöð 2. Sem betur fer þarf fólk ekki að sleppa körfuboltaleiknum fyrr um kvöldið því hann hefst kl 19.15 og lýksur honum um það leyti sem Idolið hefst í sjónvarpinu. Við viljum nefnilega að stuðningsmenn fjölmenni á Sunnubrautina því von er á hörkuleik.

KR og Keflavík töpuðu bæði síðustu leikjum sínum, gegn Njarðvík og Grindavík, og vilja ógjarnan tapa tveimur í röð. Bæði lið hafa ekki náð alveg sínu besta í deildinni og hafa fullan hug á að snúa við blaðinu. En bæði lið hafa einnig lent í meiðslum og geta ekki tjalda sínu besta liði. Baldur Ólafsson er frá í KR og Hjörtur Harðarson er, eins og kunnugt er, viðbeinsbrotinn, auk þess hefur Arnar Freyr Jónsson verið frá vegna höfuðhöggs sem hann fékk í leik gegn Tindastól um daginn.

Keflavíkurliðið verður eflaust á tánum í þessum leik, því töluvert skorti á stemminguna í síðasta leik. Menn sáu hve dýrt það getur verið og vilja ekki láta slíkt henda aftur. Nick þarf að bæta sig frá síðasta leik, en hann var með hálfgerða flensu og hefur það eflaust átt sinn þátt í slappleika hans gegn Grindavík. KR liðið er ágætlega mannað, þó sóknarleikur þeirra sé oft ómarkviss. Það verður mikilvægt að leika á fullum krafti frá byrjun og ekki gefa KR séns á að komast í stuð. Ef menn eru tilbúinir í slaginn, megum við eiga von á góðum úrslitum.