FORSALA - FORSALA - FORSALA - FORSALA
Eins og fram hefur komið stendur yfir FORSALA aðgöngumiða á Bikarúrslitaleiki karla og kvenna sem fram fara á laugardaginn kemur. Mikilvægt er að sem flestir Keflvíkingar nýti sér forsöluna vegna þess að:
- Aðgangseyrir úr forsölu rennur allur til Keflavíkur, en aðeins helmingur af þeim miðum sem eru seldir við innganginn.
- Stuðningsmannabolir (KEFLAVÍK - LANGBEST) fylgja frítt með miðum sem keyptir eru í forsölu
- Ókeypis sætaferðir eru í boði fyrir alla þá sem keypt hafa miða í forsölu
Þess vegna er ekki eftir neinu að bíða! Miðinn kostar aðeins
- 1000 kr. fyrir fullorðna (16 ára og eldri) og
- 500 kr. fyrir börn (6 - 15 ára)
Innifalið í miðaverði eru BÁÐIR leikirnir og, ákjósanlegt fyrir fjölskylduna, FRÍTT í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn á milli leikja.
Forsalan er í SKÓBÚÐINNI Á HAFNARGÖTUNNI (hjá Hemma Helga)
Athugið að aðeins er takmarkaður fjöldi miða settur í forsölu . . . fyrstir koma, fyrstir fá!!!