Fréttir

Körfubolti | 2. febrúar 2003

Forsala á Bikarinn - Stuðningsmannabolur fylgir frítt með!

Jæja nú er farið að styttast í Bikarúrslitin, þótt enn eigi meistaraflokkur karla eftir einn leik í Intersport-deildinni fyrst, í kvöld gegn Hamri.

En við viljum fá sem flesta í Höllina og við viljum selja sem flesta miða í forsölu, því þá rennur aðgangseyririnn beint til okkar, annars er honum skipt 50-50 milli félaga. Þar að auki bjóðum við upp á Stuðningsmannaboli frá Langbest fyrir alla sem kaupa í forsölu.

Forsalan verður í Skóbúðinni hjá Hermanni á Hafnargötunni.

Nú er bara að tryggja sér miða í tíma því aðeins er takmarkað framboð af miðum í forsölu.