Fréttir

Körfubolti | 4. febrúar 2004

Forsala í K-húsi og sætaferðir frá SBK

Líkt og í fyrra verður forsala á leikinn þar sem áhorfendum gefst kostur á að kaupa ódýrari miða en á leikstað. Fullorðinsmiðar kosta 1000 kr. við innganginn en 800 kr. í forsölu og barnamiðar kosta 500 kr. við innganginn en 300 kr. í forsölu. Forsalan verður í K-Húsinu við Hringbraut á föstudaginn frá kl. 15 til 18.

Síðan verða að sjálfsögðu sætaferðir á leikina. Fyrri ferðin verður kl. 11.30 og verður farið frá Duus / SBK. Verð er kl. 100 báðar leiðir. Seinni ferðin verður farin kl. 15.00 frá sama stað. Sætaferðirnar eru í boði Reykjanesbæjar og SBK.