Fréttir

Karfa: Hitt og Þetta | 28. apríl 2010

Forsala miða hefst í dag.

Forsala miða á leik Keflavíkur og Snæfells á næstkomandi fimmtudag hefst í dag. Miðasalan verður í íþróttahúsinu
við Sunnubraut og verður hún milli 17 og 19. Gengið er inn um aðal inngang (þeim megin sem húsverðirnir sitja).
Miðaverð fyrir fullorðna er 1500kr og 12-16 ára 1000kr. Einnig eru til sölu VIP miðar sem gilda í
stuðningsmannastúkuna niðri, en því fylgja einnig veitingar. Verðið á þeim miðum er 2500kr. 

Við viljum vekja athygli á því að það er gríðarleg eftirvænting og spenna í bæjarbúum fyrir þessum
leik og klárt mál að húsið verður þéttsetið. Til að auðvelda mikla teppu í miðasölunni á leiknum, ásamt
þægindum fyrir áhorfendur að geta gengið bara beint inn með miða, þá er gríðarlega skynsamlegt að
tryggja sér miða í forsölu á morgun.

KOMA SVO KEFLVÍKINGAR! FJÖLMENNUM OG STYÐJUM VIÐ BAKIÐ Á STRÁKUNUM!