Frá tímaverðinum
Tímavörðurinn er mjög spenntur fyrir skemmti og styrktarkvöldinu sem er framundan, og fagnar þeirri nýbreyttni að hafa konur og karla saman þetta kvöld.
Endanleg dagskrá liggur ekki fyrir, en Tímaverðinum hefur samt borist til eyrna að samningaviðræður eiga sér stað við hina stórskemmtilegu hljómsveit Breiðbandið, sem allir eru að tala um þessa dagana. Vonast er eftir því að þeir flytji eitthvað af sínum skemmtilegu lögum, eins og td.
- Feitur og frjáls,
- Bikarkeppnin,
- Þúsundkallinn,
- Bringuhár og bartar,
- ofl.
Einnig má alltaf búast við einhverju óvæntu þegar Breiðbandið á í hlut. Það er nokkuð víst að ef samningar nást við Breiðbandið mun Tímavörðuinn ekki láta sig vanta í Stapann, því það er næsta víst að þeirra innlegg mun lengi verða í minnum haft. Tímavörðurinn hefur fyrir því heimildir að Breiðbandið hafi slegið í gegn í Stapanum fyrr í sumar, og séu bókaðir bæði hjá körfuknattleiksdeild UMFG og UMFN, á þeirra komandi skemmtikvöldum.
Tímaverðinum hefur borist til eyrna að fólk hafi haft nokkuð gaman af vangaveltunum um mismunandi styrkleika Reykjanessmótsins og Reykjavíkurmótsins, svo ef fólk vill koma einhverjum ábendingum, skoðunum, hugmyndum eða öðru til Tímavarðarins, hefur hann fengið netfangið timavordurinn@hotmail.com .
Bestu kveðjur, þangað til næst.
Tímavörðurinn
Ath. skoðanir Tímavarðarins eru einungis hans og endurspegla á engan hátt skoðanir körfuknattleiksdeildar Keflavíkur.