Fréttir

Körfubolti | 23. september 2003

Frá Tímaverðinum Pistill 6

Jæja, þá er búið að bæta úr spjall-leysinu sem Tímavörðurinn kvartaði yfir.  Ekki verður það til að draga úr monti hans þessa dagana.  Spjallið er enn eitt dæmið um mátt þessara skrifa, en eins og áður var fjallað um hafa pistlar birst á heimasíðu Víkurfrétta og KFÍ, ásamt því að skoðanakönnun  hér á síðunni er soðinn uppúr “rígspistli” Tímavarðarinns. 

 

Tímaverðinum finnst rosalega gaman að fylgjast með spjalli á íþróttasíðum.  Þar er oft hægt að finna hvernig púlsinn er hjá einstaka liðum og stemming fyrir leiki.  Alltaf eru reyndar einhverjir sem vilja draga spjallið á lágt plan með því að vera með svívirðingar, eina leiðin til að minnka slíkt er að svara þeim alls ekki.  Ef að enginn nennir að skrifa svör við málefna-litlum skrifum á spjallinu, ættu vandræðapésanir að snúa sér annað.

 

Tímavörðurinn er langt frá því að vera fullkominn þegar kemur að stafsetningu, en stundum missir hann andlitið þegar hann les spjall, og oft rekur hann upp hlátur þegar gullkorn detta inn á spjallsvæðin.  Eitt af því eftirminnilegra sem Tímavörðurinn hefur rekist á er eftirfarandi “svar” sem tekið er af ónefndu spjallsvæði.

 

Ég er sámála svenna við óskum öllum sem fóru frá okkur í sumar. Við þökkum þeim kærlega firir Samstarfið og við óskum þeim góðsgeingis með þeim liðum sem þeir verða hjá í vetur. Vonadi eigum við eftir að vera allir saman eikern timan aftur í sama liði meiji gvuð vera með ikkur. Ég bið að heilsa öllum þakk firir mig BæBæ

 

Þessi ritháttur íslenskunnar er svo miklu skemmtilegri en ritháttur Tímavarðarinns og vonandi nær hann eikern tímann að tileinka sér þennan stíl.  Það er alls ekki ætlunin að hræða einhverja frá því að skrifa á spjallið ef þeir efast eitthvað um stafsetninguna sína, en það er hægt að hafa mikið gaman af svona skrifum.

 

 

Jæja eins og sést á þessum pistli hefur Tímavörðurinn lítið að segja, en athyglis-sýkin er slík að hann verður að vera með pistil í “nýjustu fréttum” á forsíðu síðurnar.  Ef það er eitthvað sem þið lesendur viljið að fjallað sé um, eða koma á framfæri endilega sendið tölvupóst.

 

Bestu kveðjur, þangað til næst.

 

Tímavörðurinn

 

timavordurinn@hotmail.com .

 

Ath. skoðanir Tímavarðarins eru einungis hans og endurspegla á engan hátt skoðanir Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur.