Frá Tímaverðinum tippkl. og fleira
Sú hugmynd sem Tímavörðurinn sendi inn í gær hefur þegar vakið athygli og fyrsti maður til að boða þátttöku sína í þessum nýja tippklúbb var enginn annar en heiðursmaðurinn Einar Skaftason. Tímavörðurinn óskar eftir áhugasömum mönnum og konum til að halda utan um klúbbinn, og móta endanlega.
Hugmyndin er að Tippklúbbur Keflavíkur verði að mestu leiti starfræktur í gegnum Internetið. Fólk nálgast tippseðilinn á heimasíðunni Keflavíkur undir sérstökum lið á fréttasíðunni, sendir með tölvupósti sína ágiskun, og greiði svo í gegnum heimabankann sínar skuldir.
Tímavörðurinn vill hvetja félaga, hjón, og alla þá sem áhuga hafa að taka þátt. Þetta gæti verið skemmtileg leið til að hafa körfuboltann enn meir í umræðunni en hann er í dag, svo endum við líka á heljarinnar skemmtun, þar sem besti leikmaður karla og kvenna verður valinn.
Af öðrum körfuboltamálum: Nú styttist í fyrsta heimaleik okkar á tímabilinu. Unnið er að því að fá að færa leikinn frá sunnudegi 28. sept til mánudags 29. sept., svo allir eigi auðveldara um vik með að taka þátt í gleðinni miklu á laugardeginum. Tímavörðurinn hefur ekkert séð til drengjanna sem koma til með að spila hjá okkur í vetur, og er mjög spenntur að sjá hvernig þeir koma “undan“ sumri. Eru einhverjir búnir að bæta á sig vöðvum, eða eru það einungis aukakíló sem við fáum að sjá þá taka af sér fram að jólum. Tímavörðurinn hefur einungis séð stelpurnar hjóla um bæinn, og fór það reyndar í taugarnar á honum að þessar fyrirmyndir barna í bænum væru ekki með hjálm, fyrir utan auðvitað Önnu Maríu. Einnig hefur Tímavörðurinn séð þær við og við í Lífsstíl, og er hreinlega orðinn hræddur við Erlu Þorsteins. Hún virkar í feikna formi og ætlar auðsjáanlega að taka komandi tímabil með trompi.
Vitaskuld er ekki hægt að mynda sér neina skoðun á þessu litlu upplýsingum sem Tímavörðurinn hefur, en hann hefur tröllatrú á að Guðjón, Falur og Hjörtur munu ná því besta úr þeim mannskap sem þeir hafa. Krafan er vitaskuld að vinna alla titla sem í boði eru, við erum góðu vön hér í bænum og viljum ekkert minna en síðustu ár.
Jæja nú er Tímavörðurinn búinn að röfla nóg, en endilega sendið tölvupóst ef þið viljið taka þátt í tippklúbbnum, og ef þið viljið koma einhverju á framfæri. Einnig ef þið viljið bara tjá ykkur um pistla Tímavarðarinns.
Bestu kveðjur, þangað til næst.
Tímavörðurinn
Ath. skoðanir Tímavarðarins eru einungis hans og endurspegla á engan hátt skoðanir Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur.