Frá Tímaverðinum, tippklúbbur
Tímavörðurinn er í skýjunum í dag. Heil grein sem hann skrifaði var birt í heild sinni á vef Víkurfrétta. http://www.vf.is/sportid/default.aspx?path=/resources/Controls/8.ascx&C=ConnectionString&Q=bottom_sportid&Groups=0&ID=13168
Rígurinn sem Tímavörðurinn fjallaði um síðast vakti augsjáanlega athygli. Og ekki nóg með það heldur á að endurvekja spjallið eins og Tímavörðurinn óskaði eftir í síðasta pistli. Svo það er mikið gaman að vera Tímavörðurinn þessa dagana.
Tímavörðurinn fékk tölvupóst um horfinn félagsskap sem nefndist Lukkustrákar. Klúbburinn Lukkustrákar voru starfræktir fyrir nokkrum árum, og tippuðu félagsmenn á úrslit leikja í körfuboltanum, og enduðu á að halda stórglæsilegt lokahóf, sem oftar en ekki var fjallað um í staðarblöðunum.
Tímavörðurinn vill koma með þá hugmynd að endurvekja tippklúbb í kringum körfuboltann í Keflavík en í nokkuð breyttri mynd.
- Klúbburinn sé opinn bæði konum og körlum sem styðja Körfuknattleikslið Keflavíkur
- Félagsmenn tippa á leiki í úrvalsdeildinni, ásamt einum aukaleik sem getur verið úr hvaða deild sem er, og hvers kyns sem er.
- Hver leikur sem er rangur hjá meðlimi tippklúbbsins skuldbindur hann til að greiða hundrað krónur í sjóð klúbbsins.
- Þeir sem skrá sig ÁÐUR en tímabílið hefst geta verið með, ekki er hægt að fjölga í klúbbnum eftir að tímabil hefst.
- Sá sjóður sem safnast verður notaður í glæsilegt lokahóf klúbbsins þar sem besta leikmanni Keflavíkurliðsins er boðið ásamt þjálfara. (besti leikmaðurinn verður valinn af félagsmönnum klúbbsins)
- Einungis þeir sem gert hafa upp skuldir sínar við félagskapinn geta tekið þátt í lokahófinu
- Áætlað er að hittast mánaðarlega eða eftir þörfum og tilefnum yfir tímabilið.
- Tippseðill hverrar umferðar verður birtur á heimasíðu Keflavíkurliðsins, og ef meðlimur nær ekki að tippa innan tiltekins tímafrests, fær hann alla leiki vitlausa og ber því að greiða hundrað krónur fyrir hvern leik.
- Leikurinn mun að öllu leiti fara fram í gegnum tölvupóst og heimasíðu Keflavíkur /Karfan/Forsida/ og þar undir pistlum Tímavarðarinns.
- Dæmi um seðil fyrstu umferðar:
1 9. okt KFÍ-Haukar
2 9.okt. KR-Breiðablik
3 9.okt. Tindastóll-Snæfell
4 10.okt UMFG-UMFN
5 10.okt Keflavík-Hamar
6 10.okt Þór Þorl.- ÍR
7 9.otk aukatipp Keflavík-UMFG kvennadeild
Hægt verður að velja um 1x2, einn fyrir heimaleik, x fyrir jafntefli og þar af leiðandi framlengt og tveir fyrir útisigur. Aukatippleikurinn getur verið af ýmsum toga. Td. úr hvaða liði kemur stigahæsti leikmaðurinn? Keflavík eða Hamar. Jafnvel leikur úr Enska boltanum eða hvað sem er sem umsjónamönnum dettur í hug í það og það skiptið.
Ef þú lesandi góður hefur áhuga á að vera með þá endilega sendu póst netfang Tímavarðarinns. Ef áhugi er nægur mun Tímavörðurinn finna einhverja áhugasama til að halda utan um félagsskapinn. Og ef þú lumar á góðu nafni á þennan félagsskap, þá endilega sendu það með.
Bestu kveðjur, þangað til næst.
Tímavörðurinn
Ath. skoðanir Tímavarðarins eru einungis hans og endurspegla á engan hátt skoðanir Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur.