Fréttir

Körfubolti | 24. mars 2003

Frábær afmælisgjöf: kveðja frá Tomma Knúts

Ágætu Keflvíkingar,

ég vil eingöngu þakka ykkur fyrir afmælisgjöfina (átti afmæli í gær, þann 22. mars) og óskaði eftir því við mína vinnufélaga í slökkviliðinu uppá velli að ég fengi sigur ykkar í afmælisgjöf yfir Njarðvík. Ég skemmti mér konunglega á leiknum en það sem skóp ykkar frábæra sigur var að ég tel, vilji til að sýna hvað í ykkur býr. Vonandi gengur ykkur sem best í framhaldinu.

Með vinsemd og virðingu
                   
Tómas J. Knútsson