Frábær árangur hjá strákunum - í 8 liða úrslitum mætum við stórliðinu Dijon frá Frakklandi
Fáir hefðu spáð því í haust að Keflavík myndi vinna þrjá af sex leikjum sínum gegn sterkum atvinnumannaliðum frá Portúgal og Frakklandi. En það tókst, við erum enn ósigraðir í Evrópukeppninni á heimavelli og vorum aðeins hársbreidd frá sigri í riðlinum. Enduðum með jafnmörg stig og franska liðið Hyeres-Toulon og lendum nú gegn öðru frönsku liði, Dijon, í 8 liða úrslitum Vesturdeildarinnar.
Okkar bíður spennandi, skemmtilegt, en jafnframt erfitt verkefni, því þetta franska lið er gríðarlega sterkt. Það var lengi við toppinn í frönsku deildinni, en er nú í 3ja -5ta sæti eftir 11 umferðir. Þeir hafa á að skipa fjölþjóðlegu liði, stórum og sterkum strákum úr ýmsum áttum. Þeirra helsta stjarna er besti landsliðsmaður Georgíu, Vakhtang NATSVLISHVILI, 2,05, en auk hans eru t.d. tveir Kanar innanborðs og er annar þeirra miðherji, 2,08 að hæð, Derrick DAVENPORT að nafni.
Við munum gera betur grein fyrir þessu sterka liði þegar nær dregur leikjum, en ljóst er að von er á hörkuleikjum, þar sem okkar drengjum gefst færi á að sanna sig gegn stórliði, sem hefur til umráða um 300 milljónum króna árlega til að greiða leikmönnum laun. Aðeins meira en við . . .
En leikmenn okkar hafa ekki hræðst stóra og sterka stráka og hafa leikið vel og verið félagi sínu og landi til sóma. Nú taka við nokkrir leiki í deild og bikar og síðan tökumst við á við næsta verkefni. Heimasíðan er þegar farin að hlakka til, því þessir leikir eru þeir skemmtilegustu sem maður hefur séð í háa herrans tíð.