Fréttir

Körfubolti | 16. desember 2002

Frábær endasprettur tryggði 20 stiga sigur gegn Haukum i Bikarnum

Þegar rúmar þrjár mínútur voru eftir af leiknum í gær var staðan 85-78 og leikurinn virtist í nokkuð öruggum höndum heimamanna. Guðjón tekur 3ja stiga skot sem geigar og Damon hoppar hæst allra og ætlar sér að ná sóknarfrákastinu en Kristinn dómari Albertsson sér eitthvað athugavert við framgöngu Damons og dæmir á hann villu. Hans fimmtu! Damon yfirgaf völlinn og Steve Johnson fór á vítalínuna og minnkaði muninn í fimm stig, 85-80. Var eitthvað slæmt í aðsigi?

Leikur okkar manna hafði verið hálf slitróttur framan af en stöðug pressa á bakverði Hauka hafði þó skapað usla meðal gestanna sem var nýttur til að skapa 10 stiga forskot eftir fyrri hálfleik. Það forskot hafði nú minnkað og aðal maður liðsins, Damon, sem hafði skorað 29 stig var kominn út af. Það fór um keflvíska áhorfendur.

En þá tók liðið heldur betur við sér og engir meira en Sverrir Þór Sverrisson og Guðjón Skúlason. Sverrir fór fyrir sínum mönnum í varnarleiknum, barðist eins og ljón og stal m.a. boltanum glæsilega af Steve Johnson, og Guðjón, sem ekkert hafði hitt allan leikinn, fór í gang svo um munaði. Sá "gamli" setti niður fjóra þrista í röð og skoraði alls 18 stig í síðasta leikhlutanum, þar af 15 á síðustu þremur mínútunum. Þegar Guðjón fer í gang er hann engum líkur. Sigurður þjálfari gerði vel í því að halda Guðjóni inná þrátt fyrir að hann hefði verið frekar slakur framan af, þjálfaran grunaði nefnilega að besta skytta landsins gæti skellt nokkrum bombum niður í lokin og sú varð einmitt raunin.

Haukarnir hugsuðu sér gott til glóðarinnar við brottrekstur Damons og ætluðu að nýta sér vandræði heimamanna. Þeir reiknuðu hins vegar greinilega engan veginn með því að Keflavík myndi spýta svo ærlega í lófana sem raun bar vitni. Þeir voru algerlega ráðalausir gegn pressunni og létu lágvaxna Keflvíkinga þar að auki taka sig í bakaríið í fráköstunum. Munurinn fór minnst í fjögur stig, 88-84, en Keflavík skoraði síðan 18 stig gegn 2 í lokin (!!!) og sigraði örugglega 106-86.

Guðjón og Damon komu töluvert við sögu í leiknum í gær. Damon fór útaf og Guðjón kláraði leikinn!

Þegar hefur verið minnst á þátt Guðjóns og Sverris, en auk þeirra var Gunnar Einarsson grimmur í leiknum og skoraði mikið. Damon virtist einhvern veginn ekki beita sér af fullum krafti en engu að síður var eins og hann gæti skorað að vild. Falur átti góða innkomu í fyrri hálfleik, en var rólegri í þeim seinni.

Eins og stundum áður í vetur beitti Keflavík pressuvörn mest allan leikinn en leikmenn voru oft full ákafir í boltann, voru jafnvel þrír í einum Haukamanni, sem leiddi til þess að Haukarnir fengu mikið af galopnum færum sem þeir nýttu sér. En þegar Keflavík náði réttum fókus áttu Haukarnir aldrei möguleika. Sérlega gaman var að sjá endasprettinn, því stundum hefur manni fundist að leikmenn bíði eftir því að Damon "klári leikinn". Nú var engu slíku að dreifa og drengirnir tóku af skarið og hvergi var hikað. Mikilvægt innlegg í reynslubankann! Frábær lokasprettur tryggði okkur sæti í 8 liða úrslitum og telja verður okkar lið til alls líklegt í Bikarkeppninni úr þessu, ekki síst þar sem KR, Haukar og annað hvort Njarðvík eða Grindavík eru úr leik.

Síðasti leikurinn á þessu ári verður gegn Snæfelli í Stykkishólmi á föstudaginn. Þar gildir að leika af krafti því með sigri getum við komið okkur í ágætt sæti í deildinni fyrir jól.