Fréttir

Körfubolti | 11. mars 2004

Frábær leikkafli í fyrri hálfleik skóp öruggan sigur gegn Tindastóli

Það má með sanni segja að leikurinn í kvöld hafi verið kaflaskiptur. Fyrstu mínúturnar voru jafnar, en þegar Magnús Gunnarsson kom inn af bekknum fóru hlutirnir að gerast hjá Keflavík. Maggi var í miklu stuði og bombaði niður þristum í gríð og erg, setti fjóra á stuttum kafla í fyrri hálfleik. Eftir fyrsta leikhlutan var forystan orðin 9 stig, 27-18. Í öðrum leikhluta bauð síðan Keflavíkurhraðlestin upp á flugeldasýningu að hætti Sláturhússins, þar sem allir fóru á kostum. Gunnar Einarsson átti sterka innkomu og hann átti upphafið að flottasta leikkafla leiksins, þegar hann elti einn Króksarann í hraðupphlaupi og blokkaði sniðskot hans með tilþrifum og náði boltanum í kjölfarið. Tveimur sekúndum seinna smellti Maggi niður bombu og svo stal Nick boltanum og næsta hraðupphlaup endaði með troðslu frá Derrick. Á þessum kafla náði Keflavík mest 30 stiga forskoti, en í hálfleik var munurinn 26 stig, 57-31.


Derrick treður yfir Stólana (mynd fengin að láni hjá Víkurfréttum)

En leikmenn Keflavíkurliðsins gerðu sig seka um sömu mistök og áhorfendur í leikhléi. Þeir héldu að leikurinn væri búinn og mættu afar kærulausir til leiks í seinni hálfleik. Tindastólsmenn, drifnir áfram af Clifton Cook og David Sanders, fóru að salla niður stigum og fyrr en varði hafði forskotið skroppið verulega saman og varð minnst 9 stig, 68-59. En þá kom Fannar Ólafsson til leiks að nýju og sagði hingað og ekki lengra. Hann fór fyrir sínum mönnum með alkunnri baráttu, reif niður fráköst og peppaði leikmenn og áhorfendur upp að nýju. Keflavík kom sér aftur í þægilega stöðu og munurinn var í kringum 15-18 stig það sem eftir lifði leiks. Lokatölur urðu 98-81 fyrir Keflavík.

Kanarnir okkar, þeir Nick og Derrick hafa yfirleitt verið betri en í kvöld. Reyndar var Nick (17 stig, 6 frák, 6 stoðs) mjög góður í vörninni í fyrri hálfleik gegn Cook, en slakaði full mikið á í þeim seinni. Derrick (18 stig, 13 frák, 4 varin skot) var afar lánlítill í skotum enda fengu Sævar og félagar að brjóta á honum að vild án athugasemda frá dómurum leiksins. Breiddin skilaði sínu í leiknum í kvöld. Fannar var mjög öflugur, gerði 17 stig og hirti 18 fráköst og barðist eins og ljón. Gunnar E átti stórleik, var sterkur og hitti vel, setti 7 af 10 skotum oní og var stigahæstur með 20 stig. Magnús var frábær og hefði að ósekju mátt leika meira. Hann hitti vel og var vakandi fyrir spili, gerði 15 stig og gaf 6 stoðs. Jonni átti einnig góðan leik, skoraði úr öllum 5 skotum sínum, gerði 10 stig, tók 5 frák, varði 3 skot og veiddi nokkra ruðninga með miklu hugrekki. Hjörtur og Sverrir voru ágætir við leikstjórnina, þótt stundum hafi sóknarleikurinn hægst full mikið. Sverrir gaf 6 stoðsendingar. Arnar og Halldór áttu ágætar innkomur, en settu ekki mark sitt á leikinn í þetta skiptið.

Hér má sjá tölur úr leiknum.

Stólarnir voru andlausir í fyrri hálfleiknum, en baráttuglaðir og ógnandi í þeim seinni. Þeir söknuðu greinilega Nicks Boyd sem var fjarverandi vegna meiðsla, en fjarvera hans dró mesta máttinn úr leik þeirra undir körfunum. Cook og Sanders fóru á kostum á köflum í seinni hálfleik og sýndu frábæra takta, Cook með leikni sinni og hittni, en Sanders með góðum gegnumbrotum og flottum troðslum. Helgi og Svavar voru einnig góðir. Reyndar var merkilegt hve mörgum sóknarfráköstum Stólarnir náðu og var engu líkara en að Keflvíkingar hreinlega gleymdu að "stíga sína menn út" eins og sagt er á körfuboltamáli. Þeir eru fastir fyrir í vörninni og komast reyndar upp með ansi grófan leik undir körfunni. En það verður ekki frá þeim tekið að þeir börðust vel og komust næstum því inn í leikin að nýju. Ljóst er að næsti leikur á Króknum verður afar erfiður.

Okkar menn verða að læra, enn einu sinni, að hugarfarið skiptir öllu máli. Um leið og menn verða rólegir og sigurvissir, þá hrynur leikurinn. En þegar liðið leikur í botni, fær fátt stoppað Keflavíkurhraðlestina. Þessi sigur tryggir okkur mikilvæga 1-0 forystu í þessu einvígi.