Frábær mæting á fyrsta morgunverðarhlaðborð KKDK - Þökkum fyrir okkur
Það var sannkölluð Ljósanæturstemmning á fyrsta morgunverðarhlaðborði Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur í gær. Mætingin fór fram úr björtustu vonum en það voru rúmlega 300 gestir sem mættu og gæddu sér á gómsætum morgunmat. Á boðstólnum voru bacon, egg, vöfflur, pulsur, bakaðar baunir, ýmiskonar brauðmeti auk mikils úrvals gómsætra ávaxta. Það var mál allra þeirra sem komu á þetta morgunverðarhlaðborð að þetta hefði heppnast ótrúlega vel og höfðu sumir á orði að þetta þyrfti helst að vera vikulega!
Keflvíkingar vilja þakka öllum þeim sem mættu á svæðið til að styðja deildina en sérstakar þakkir fá öll þau fyrirtæki og einstaklingar sem lögðu okkur lið við að gera þetta að veruleika, án ykkar hefði þetta ekki verið hægt!
Sjáumst aftur að ári - því þetta er svo sannarlega komið til að vera!
Mynd: Davíð Þór Jónsson, morgunverðarfrömuður, ásamt þeim Guðjóni Skúlasyni og Margeiri Einari Margeirssyni við upphaf hlaðborðsins í gær.