Frábær "Pre-Game" umfjöllun hjá DV
Sérlega var gaman að lesa DV í dag. Ólíkt öðrum fjölmiðlum hefur DV farið út í að fjalla um leiki áður en þeir gerast. Það helgast m.a. að hluta til af því að blaðið fer snemma í prentun. Í dag var fjallað um stórleik Keflavíkur og Njarðvíkur sem fram fer í kvöld (hefst eftir um 2 og hálfan tíma). Við viljum hrósa DV fyrir þessa skemmtilegu umfjöllun, og eins og við mátti búast, var hún skreytt með ýmsum tölulegum staðreyndum, enda Óskar Ófeigur höfundur greinarinnar.
Viljum þó leiðrétta Óskar pínulítið, því hann segir að Keflvikingar hafi tekið upp á því á undanförnum árum að nefna heimavöll sinn "Sláturhúsið". Þetta er ekki rétt, því þessi nafngift varð til fyrir rúmum 20 árum! Og það voru blaðamenn, ekki Keflvíkingar, sem gáfu Sunnubrautinni þetta ógurlega nafn. Ástæðan var sú að leiktíðina 1982-83 var Keflavík í fyrsta skipti í efstu deild, en fór þvílíkum hamförum á heimavelli að Morgunblaðið (og aðrir fjölmiðlar) hófu að kalla heimavöllinn "Sláturhúsið". Síðan hefur nafn þetta öðru hvoru blossað upp en stundum verið minna notað. En sem sagt, nafnið er í raun jafngamalt íþróttahúsinu að Sunnubraut.
Og svo er það bara fjörið á eftir . . . . .