Frábær pressuvörn í þriðja leikhluta skóp 11 stiga sigur í kvöld gegn CAB Madeira í Bikarkeppni Evrópu
Þegar skammt lifði af fyrri háfleik leiddu gestirnir frá Madeira með 8 stigum, 31-39. Þá urðu okkar menn ákafari og hertu vörnina. Nick Bradford tók góðan sprett í sókninni og setti 8 af stigum Keflavíkur í 10-0 spretti sem skilaði 2ja stiga forystu í hálfleik, 41-39. Keflavík náði 5-0 forystu með körfum frá Fal og Derrick, en síðan hafði Madeira frumkvæðið mest allan fyrri hálfleikinn, ekki síst vegna 3ja stiga skotsýningu frá Gimenez (nr. 8) sem skellti niður fjórum þristum. Byrjunarlið Keflavíkur var skipað Fal, Gunnari E, Jonna, Nick og Derrick. Davíð, Maggi og Gunnar komu einnig við sögu og náði Davíð að setja tvær körfur með góðum gegnumbrotum.
Í seinni háfleik kom Sverrir Þór inná í fyrsta skiptið og Guðjón læt lærisveina sína færa vörnina framar á völlin og auka pressuna. Það virtist þó ekki koma andstæðinunum úr jafnvægi til að byrja með. En í stöðunni 48-49 fóru hlutirnir að gerast. Með Sverri í broddi fylkingar fór pressuvörnin að bíta ærlega á gestunum. Þeir urðu óöruggir og gerðu mistök á mistök ofan gegn pressunni. Í kjölfarið fylgdi besti kafli Keflavíkur sem gerði 16 stig í röð, mörg þeirra gerði Nick sem átti líklega sinn besta leik frá komu hans til Keflavíkur.
Við upphaf síðasta leikhluta var staðan 73-59 fyrir Keflavík og nú upphófust spennandi mínútur. Madeira skellti drekunum sínum undir körfurnar og þeir sóttu stífar að körfunni, þar sem þeir voru illviðráðanlegir. Munurinn minnkaði og fór niður í sex stig, 74-67. Þá fór um marga áhorfendur og menn minntust lokamínútna frá leiknum gegn Njarðvík um daginn. En nú brugðust leikmenn rétt við stöðunni og hertu varnarleikinn og léku sóknina af áræðni. Miklu munaði um 3ja stiga körfu frá Magnúsi sem kom forystunni aftur í 10 stig. Eftir það var sigurinn nokkuð öruggur eftir soldið fum og fát á lokamínútunum varð niðurstaðan 11 stiga sigur, 99-88.
Frábær varnarleikur og góð barátta skóp sigurinn og það var virkilega gaman að sjá að Keflavíkurliðið getur unnið sterk lið án þess að vera í 3ja stiga stuði, því í raun voru það gestirnir sem unnu 3ja stiga keppnina. Keflavík hitti aðeins úr 5 af 19 þristum sem er 26%, en Madeira setti 8 oní af 21 sem er 38%. En Keflavík vann frákastakeppnina, með 36 á móti 28, þrátt fyrir að þrír leikmenn gestanna hafi verið tröllvaxnir, þeir Johnston (nr. 14), Picardo (nr. 5) og allra helst Leeks (nr. 4). Þessir menn eru gríðarlegir burðum og erfiðir við að eiga undir körfunum. Okkar menn voru hins vegar mun sprækari úti á velli og bjuggu yfir meiri hraða og tækni en andstæðingarnir.
- Nick átti frábæran leik, skoraði 29 stig, hirti 12 fráköst, gaf 5 stoðsendingar, en missti jafnframt boltann 7 sinnum.
- Derrick barðist vel að vanda, en átti erfitt uppdráttar gegn tröllunum undir körfunum, skoraði 18 og tók 9 fráköst.
- Falur átti frábæran leik, skoraði 16 stig, gaf 7 stoðsendingar og hirti 7 fráköst, hélt uppi góðum hraða út allan leikinn.
- Gunnar átti enn einn stórleikinn í Evrópukeppninni, jafnvel þótt 3ja stiga skotin hafi oft gengið betur. Hann lék góða vörn og skoraði líka 14 stig.
- Magnús hefur oft hitt betur, en átti lykil körfuna í leiknum, setti 10 stig og gaf 4 stoðsendingar.
- Sverrir átti hreint frábæra innkomu og skoraði 6 stig og gaf 6 stoðsendingar á aðeins 14 mínútum. Hann stal boltanum 3svar og orsakaði einnig fjölda mistaka hjá Madeira, auk þess sem hann gaf félögum sínum aukinn kraft í vörnina.
- Davíð átti ágæta innkomu og skoraði 4 stig eftir skemmtilega keyrslu að körfunni.´
- Jonni var í villuvandræðum, eins og stundum áður, en gerði margt gott í vörninn, m.a. stal hann 3 boltum. Hann gerði 2 stig.
- Gunnar lék síðustu sex mínúturnar í fyrri hálfleik, gerði engin mistök, en náði ekki að setja mark sitt á leikinn.
- Halldór lék ekki í þetta skiptið.
Hjá Madeira voru þeir atkvæðamestir Gimenez (nr. 8) með 20 stig, Johnston (nr. 14) 15 stig, Termens (nr. 9) 15 stig og Pichardo (nr. 5) 14 stig. Þess skal þó getið að besta skytta liðsins, Spánverjinn Marcos, var utan vallar allan tímann og kom ekki við sögu, sökum meiðsla.
Keflavík hefur nú unnið báða heimaleiki sína í Evrópukeppninni og hefur, líkt og Ovarense, unnið tvo af þremur leikjum. Sem stendur er Keflavík efst í riðlinum :). Næsti leikur er gegn Toulon frá Frakklandi miðvikudaginn 10. desember og þá er von á svaka leik.
Hér má sjá heildartölur leikmanna Keflavíkur í Bikarkeppni Evrópu.
Nick Bradford og Derrick Allen eru stigahæstu leikmennirnir í Vesturdeildinni. Hér má sjá heildar "statistik" úr Bikarkeppni Evrópu.