Frábær rekstrarárangur körfuknattleiksdeildar Keflavíkur
Eins og allir vita þá var síðasta leiktíð ein sú allra glæsilegasta í sögu Keflavíkur. Og það sem gerir árangurinn enn glæsilegri er að reksturinn gekk mjög vel og skilaði umtalsverðum afgangi, þrátt fyrir mjög kostnaðarsama þátttöku í Bikarkeppni Evrópu, en ætla má að sú þátttaka hafi kostað alls um 6 milljónir króna. En tekjuöflunin gekk vel og mun niðurstaða ársins verða kynnt á aðalfundi deildarinnar þann 11. maí n.k. Fyrstu útreikningar gefa til kynna að hagnaður af starfseminni hafi verið um 2-3 milljónir króna sem er með því allra besta sem náðst hefur hjá deildinni (nákvæmar tölur verða birtar á aðalfundinum 11. maí). Deildin hefur nú verið rekin með hagnaði fjögur ár í röð.
Ástæðan fyrir góðri rekstrarafkomu er margþætt; í fyrsta lagi hafði launaþakið (umdeilda) verulega góð áhrif á kostnað, ekki síst við erlenda leikmenn, í öðru lagi kom myndarlegur styrkur frá aðastjórn félagsins upp á 1,3 milljónir og svo var áhorfendaaðsókn í úrslitakeppninni með allra besta móti. Svo má náttúrulega ekki gleyma því að liðin tvö fóru “alla leið” í helstu keppnum ársins. Þar utan var rekstur yngri flokka deildarinnar með besta móti, líkt og undanfarin ár. Stærsta málið var þó kannski dugnaður og velvilji styrktaraðila og stuðningsmanna vegna Evrópukeppninnar, en hún endaði réttu megin við núllið.
Á bak við þennan árangur er gríðarlega mikil sjálfboðavinna stjórnarmanna, en auk þess voru leikmenn, þjálfarar og aðrir aðstandendur verulega iðnir við starfið og ekki síst við fjáraflanir í tengslum við Evrópukeppnina. Rekstrarafgangurinn er notaður til að greiða niður gamlar skuldir og búa í haginn fyrir komandi leiktíð