Fréttir

Körfubolti | 28. febrúar 2005

Frábær skemmtun þegar Keflavík tryggði sér efsta sæti Intersportdeildarinnar með öruggum sigri á Njarðvík, 94-82

Leikir grannanna úr Keflavík og Njarðvík hafa yfirleitt verið ávísun á góða skemmtun. Og á því varð enginn breyting í kvöld. Leikurinn var fjörugur og hörkulega leikinn, spennandi og fullur af flottum tilþrifum. En okkar menn voru betri, nánast allan leikinn, og sigruðu verðskuldað með 12 stigum, 94-82.

Tveir menn fóru fyrir Keflavíkurliðinu í kvöld, þeir Anthony Glover og Magnús Gunnarsson. Tony fór illa með Friðrik og Egill og virtist, sérstaklega í fyrri háflleik, geta skorað að vild. Hann "drævaði" fram hjá stórum varnarmönnunum og lagði knöttinn hvað eftir annað ofaní körfuna, þrátt fyrir að Njarðvíkingar gáfu ekkert eftir í varnarleiknum. Hlutur Magnúsar var líka einkar glæsilegur. Hann negldi niður þristum allan leikinn (setti niður 8 af 11), stundum með varnarmann í andlitinu og stundum eftir að hafa notað skrín sérlega vel, líkt og Gaui Skúla í "gamla daga". Auk þess var Maggi sérlega drjúgur í varnarleiknum, hann las leikinn vel, stal boltum og hjálpaði mikið til. Þessir tveir skoruðu 61 af 94 stigum og voru menn dagsins.

Annars var það einna helst vörnin sem skóp sigurinn, eins og svo oft áður. Í fjórða leikhluta þegar Njarðvíkingar gerðu sig líklega til að komast aftur inn í leikinn var vörninni skellt í lás. Keflavík hafði haft nokkuð þægilega forystu allan leikinn, þetta 8-10 stig, en í fjórða leikhluta minnkaði munurinn í fjögur stig, í kjölfar þriggja stiga körfu frá Dóra Karls "from downtown". En þá sýndi Nick frábæra varnartilburði og hann leiddi vörnina sem gersamlega lokaði á sókn Njarðvíkinga sem köstuðu boltanaum frá sér trekk í trekk, auk þess sem þeir tóku mikið af slæmum skotum. Eftirleikurinn var auðveldur og sigurinn sannfærandi.

Merkilegt í kvöld var að Kanarnir okkar voru löngum stundum utan vallar vegna villuvandræða og leystu strákarnir það verkefni vel af hendi. Jonni sem er meiddur, skilað sínum sex mínútum með stæl og einnig má nefna Elentínus sem var geysiöflugur í vörninni, líkt og Sverrir Þór, en það er jú ekkert nýtt.

Njarðvíkingar voru sveiflukenndir í kvöld, Friðrik byrjaði mjög sterkt, auk hans áttu þeir Lackey og Brenton góða spretti. Páll virkaði frískur en hvarf löngum stundum.

Þessi góði stigur færði okkar mönnum Deildarmeistartitlinum og oddaleik í úrslitakeppninni ef til slíks kemur. Við notum tækifærið og óskum strákunum til hamingju með það og vonum að framhald verði á góðri frammistöðu á næstu vikum.

Dómarar kvöldsins, Björgvin og Erlingur, voru skelfilegir, því miður, og höfðu engin tök á leiknum. Það verður að segjast eins og er að eftir að Leifur og fleiri hættu að dæma hefur dómgæslunni hrakað verulega í Intersport-deildinni. Og við bætist að bestu dómararnir, Simmi og Kiddi Ó, eru frá Njarðvík og Keflavík, og geta því ekki dæmt nágrannaslaginn sem er líklega erfiðasti leikurinn að dæma. Án þess að vilja kenna dómurum um eitt eða annað í úrslitum verður að segjast að þeir eru ekki að standa sig vel, og leikurinn í kvöld var afar slakur af þeirra hendi, þeir voru lélegustu mennirnir á vellinum.

Næsti leikur, sá síðasti í deildinni, er gegn nýliðum Fjölnis í Grafarvogi, næst fimmtudag kl. 19.15.